Áshamar 2-10
Skuggi 6 reisir 5 fjölbýlishús að Áshamri 2-10. Svanurinn er norrænt vottunarkerfi sem leggur áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum bygginga og bæta auðlindanýtingu. Svansvottunun gerir köfur til lágrar orkunotkunar hússins og notkun öruggra og umhverfisvæna efna í byggingar.
Glæsilegt hverfi í nágrenni við stórkostlega náttúru, Hvaleyrarvatn, Helgafell, Kleifarvatn o.fl.
Áætlað er að fyrri hluti verkefnisins verði tilbúið til afhendingar haustið 2023 og síðari hluti vorið 2024.
Utanhúsfrágangur
- Við hönnun Áshamars var lögð áhersla á vandaðar tryggar lausnir m.t.t endingar byggingar
- Útveggir bygginga eru einangraðir að utan sem lágmarkar allar kuldabrýr sem eykur orkunýtni.
- Gluggar eru vottaðir gæða ál/tré gluggar frá traustum frameiðanda með góða reynslu af íslenskum aðstæðum.
- Til að tryggja þéttleika glugga í byggingu er hluti þeirra þrýstiprófaður til samræmis við rakavarnaráætlun Svansins.
- Brunaþolinn öndunardúkur er settur undir álklæðningu og yfir útveggjaeinangrun
- Öndunardúkur tryggir að ekki blási kalt loft inn í einangrun.
- Öndunardúkur tryggir að vatn eigi ekki greiða leið inn í útveggjaeinangrun og þá inn að útvegg.
- Öndunardúkur tryggir að orkunotkun hússins sé til samræmis við orkuskýrslu Svansins því einangrun er jú ekki annað en þurrt kyrrt loft.
- Svalahandrið og svalagangar eru álkerfi með hertu gleri.
- Þakfrágangur er viðsnúið þak þ.e tvöfaldur ábræddur þakpappi, XPS einangrun og farg. Að viðbættum hefðbundum frágang er sett drenerandi dúkur undir einangrun og afrennslisdúkur ofan á einangrun sem hvor tveggja bæta gæði einangrunar.
- Ysta byrgði útveggja og veðurkápa bygginga er að mestu álklætt sem tryggir viðhaldslétta eign til samræmis kröfum Svansvottunar um gæði.
Myndir
Innanhúsfrágangur
- Svansvottun gerir ríka kröfu til aukinnar innivistar
- Hljóðhönnuðir yfirfara efnisval og hönnunarlausnir.
- Hönnuðir skila dagsljósaútreikningum að kröfu Svansins sem tryggir björt íverurými
- Hönnuðir skila orkuútreikningum bygginga að kröfum Svansins
- Sjálfvirk ljósastýring er í öllum sameingum að kröfum Svansins.
- Svansvottun gerir ríka kröfu til alls efnisvals í byggingum svo tryggt sé að ekki fari skaðleg efni heilsu sem og að
- Umhverfisvottaðar innréttingar og gólfefni
- Umherfisvænn milliveggjasteinn sem jafnframt hefur þol gangvart raka og myglu.
- Umhverfisvæn málning.
- Vatnssparandi hreinlætistæki.
- Fjöldi íbúða
- 140
- Áætluð verklok
- 2024
- Arkitekt
- KRARK ehf.
Á svæðinu er risinn skóli ásamt leikskóla og tónlistarskóla, þjónustu og snyrtileg atvinnustarfsemi auk opinna svæða, garða, leiksvæða.
Á svæðinu rís blönduð byggð þar sem gott jafnvægi ríkir milli heimilis og vinnu í vistvænu hverfi sem býr yfir góðum tengslum við náttúrufar svæðisins. Horft er til hverfisins í heild þar sem reynt verður að „tryggja fjölbreytt, sveigjanlegt, öruggt og örvandi umhverfi sem hvetur til skapandi athafna fólks á öllum aldri“.